Til baka í verkefni
Full-stack vefverkefni

Fasteignavefur

Fasteignamarkaður fyrir gesti, kaupendur og seljendur, frá leit og tilboðum yfir í kaupferlið.

Um verkefnið

Þróaði fasteignavef í Django þar sem gestir, kaupendur og seljendur hafa mismunandi aðgang og virkni. Verkefninu er skipt í Django-forrit fyrir notendur, fasteignir, seljendur, tilboð og tilkynningar. Django ORM og PostgreSQL eru notuð til að halda utan um fasteignir, myndir, seljendasnið, uppáhald og kauptilboð.

Kaupendur geta leitað, síað og raðað fasteignum eftir staðsetningu, verði, eignartegund, stærð og skráningardegi. Hægt er að skoða upplýsingar og myndir, vista fasteignir í uppáhald og gera tilboð. Seljendur geta skoðað, samþykkt, hafnað eða uppfært tilboð og kerfið kemur í veg fyrir ógildar aðgerðir eftir að tilboð hefur verið samþykkt eða fasteign seld.

Kaupferlið er í nokkrum skrefum þar sem tengiliðaupplýsingum er safnað, greiðslumáti staðfestur og staða fasteignar og tilboða uppfærð. Verkefnið inniheldur einnig tölvupósttilkynningar og skjáaðlagað viðmót byggt með Django Templates, Bootstrap, CSS og JavaScript og var keyrt á Azure.

Myndir úr viðmóti

Tækni

PythonDjangoPostgreSQLJavaScriptHTMLCSSBootstrapAzure