Einkaklúbburinn endurhugsaður — Arion banki
Frumgerð að gagnadrifnu fríðinda- og afsláttarkerfi, þróuð í samstarfi við Arion banka.
Um verkefnið
Ég vann í fimm manna teymi að tæknilegri frumgerð sem endurhugsaði fríðindakerfi Arion banka. Kerfið heldur utan um samstarfsaðila, söluaðila, posa og afsláttarreglur og metur færslur út frá meðal annars kortategund, fríðindastöðu, búsetu og forgangi tilboða.
Bakendinn var byggður með ASP.NET Core REST API, Entity Framework Core og SQL Server og skýrum aðskilnaði endapunkta, viðskiptareglna og gagnalags. RabbitMQ og NServiceBus sáu um ósamstillta færsluvinnslu með vörn gegn tvívinnslu, endurtilraunum, villuröðum og niðurstöðuskeytum fyrir framtíðar endurgreiðslu- og tilkynningaþjónustur. Frumgerðin vann úr yfir 100 færslum á mínútu í prófunum.
Teymið nýtti Docker Compose, Azure DevOps Pipelines og Octopus Deploy til að samræma þróun, prófanir og dreifingu. Ég bar meginábyrgð á skýrslugerð og upplýsingamiðlun innan verkefnisins, hélt utan um umfang og stöðu þess og tók saman vinnu- og framvindugögn fyrir teymið. Ég lagði jafnframt áherslu á að halda samstarfinu skilvirku og upplýsingaflæði skýru þrátt fyrir að vinna frá Brisbane og takast á við verulegan tímamun.
Lokaskýrsla verkefnisins: https://hdl.handle.net/1946/53852